Blöskrar vinnubrögð Alþingis
Ef stjórnendur fyrirtækja hefðu fylgt fordæmi alþingismanna á undanförnum mánuðum væru fyrirtæki landsins enn verr stödd en þau eru í dag. Þetta segir í ályktun stjórnar Samtaka verslunar og þjónustu sem lögð var fram í kjölfar fundar með viðskiptaráðherra fyrr í dag.
„Alþingismenn þurfa að taka sig saman í andlitinu og snúa bökum saman, eins og við sem erum í fyrirtækjarekstri höfum gert, við setjumst niður og ræðum málin," segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ.
„Okkur blöskrar að hafa horft upp á stjórnvöld vikum og mánuðum saman haga sér eins og þau hafa gert þar sem hver höndin er upp á móti annarri.“
SVÞ skorar á stjórnvöld að samþykkja á yfirstandandi þingi trúverðuga umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Mikil samstaða er innan samtakanna um aðild og telja félagsmenn að þannig fáist starfhæft rekstrarumhverfið sem sé fyrirtækjunum lífsnauðsynlegt.
„Það er ljóst að það er undir okkur komið að skapa þau 20.000 störf sem vantar, þau munu verða til í verslun, þjónustu og iðnaði frekar en í öðrum greinum, eins og til dæmis sjávarútvegi,“ segir Margrét. Til þess þarf lægri vexti og nothæfan gjaldmiðil.
Tvær tillögur ávísun á deilur um smáatriði
Í ályktuninni er gagnrýnt að tvær þingsályktunartillögur liggi fyrir Alþingi um aðildarviðræður. Slíkt sé ávísun á deilur um smáatriði og útfærsluleiðir. Þjóðin hafi hvorki tíma né efni á slíku núna.
„Það er gríðarlega mikilvægt að öflugur þingmeirihluti sé á bak við málið því umsóknin sjálf er ekki nóg, hún verður að vera trúverðug.“
Andstæðingar aðildar að ESB hafa bent á að evran komi ekki sjálfkrafa og samstundis með aðild. Evrópusambandið sé því ekki lausn á bráðavanda þjóðarinnar. Margrét kveðst að sumu leyti geta tekið undir þetta. Það breyti því hins vegar ekki að umsókn hefði strax umtalsverð áhrif, þó hún væri ekki lausn á öllum okkar vanda við þessar aðstæður. Ekki sé hægt að útiloka neinar leiðir fyrirfram. Óhagstæðum samningi yrði án efa hafnað í þjóðaratkvæði og því sjái þau í SVÞ ekkert því til fyrirstöðu að láta reyna á aðildarumsókn strax.
„Við teljum líka að trúverðug umsókn myndi sýna hvert Íslendingar vilja stefna. Með því myndi skapast ákveðin trú og traust á okkur Íslendingum sem skortir svo tilfinnanlega. Aukið traust kæmi án efa til móts við hluta af þeim bráðavanda sem við glímum við, t.d. í lægri vöxtum.“
Bloggað um fréttina
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson Áskorun á Alþingi -
Axel Jóhann Axelsson Steinum kastað úr glerhúsi -
Sigurbjörn Svavarsson SVÞ í vímu. -
Jóhannes Ragnarsson Frekjulæti braskara- og prangstéttarinnar -
Ólafur Eiríksson Minnir á veruleikafirrtan ungling -
Sigurður Þórðarson Verslunin skyldi ekki vanmeta sjávarútveginn -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Tryggjum að aðild að ESB kosti ekki þáttöku í hernaði. -
Guðbjörn Jónsson Undarlegur óvitaskapur í forystuliði Samtaka verslunar og þjónustu. -
Jenný Stefanía Jensdóttir Skessa! -
Axel Pétur Axelsson ESB NEI takk ! -
Marinó G. Njálsson Silagangur stjórnvald með ólíkindum
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Vika verslunar og þjónustu
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Telja líklegt að Icesave-samningar náist
- Miðvikudagur, 10. júní 2009, Innlent SVÞ vilja aðildarumsókn að ESB
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































