Stýrihópur um eflingu atvinnulífs

Dagur B. Eggertsson. stækka

Dagur B. Eggertsson. mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað Dag B. Eggertsson borgarfulltrúa formann stýrihóps verkefnisins um sóknaráætlun fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífgæða til framtíðar. Gerð þeirrar áætlunar og mótun nýrrar atvinnustefnu eru meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar. Aðrir í stýrihópnum eru Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík.

Eitt meginmarkmið þessarar vinnu er að móta áherslur sem tryggja að Ísland verði eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020.

Stýrihópnum er ætlað að hafa forgöngu um að lagt verði heildstætt mat á styrkleika Íslands og tækifærum og hvernig sækja megi fram, ekki síst á sviði atvinnumála. Með matinu næst yfirsýn yfir áætlanir sem heyra undir ólík ráðuneyti auk þess sem greint verður hvernig þær geti spilað saman. Jafnframt verði gerðar sérstakar sóknaráætlanir fyrir hvern landshluta fyrir sig til eflingar atvinnulífs og lífsgæða. Þær verða unnar í samráði við íbúa, sveitarfélög, hagsmunaaðila, grasrótarhreyfingar og sérfræðinga.

Stýrihópurinn hefur þegar hafið störf og hann mun efna til viðtæks samráðs til að kalla fram sameiginlega framtíðarsýn sem sóknaráætlunin verður byggð á. Til að ná markmiðum hennar verði náð er ætlunin að samþættar verði áætlanir í samgöngumálum, fjarskiptamálum, ferðamálum og byggðaáætlanir auk áætlana um eflingu sveitarstjórnarstigsins og ýmsa vaxtarsamninga og aðra opinbera stefnumótun og framkvæmdaáætlanir sem ætla má að komi til endurskoðunar í kjölfar efnahagshrunsins.

Stýrihópnum er ætlað að setja fram verkefnisáætlun og gert er ráð fyrir að þær áætlanir sem lagðar verði fram á Alþingi frá og með vetri komandi taki mið af verkefninu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Allt að verða klárt á grásleppuna. Ásgeir Árnason á Gísla Gunnarssyni SH 5 og feðgarnir ...

Margir á grásleppu

15:13 Grásleppuvertíðin á innanverðum Breiðafirði hófst klukkan átta í morgun og var spenna í Stykkishólmshöfn snemma í morgun þegar fréttaritari mbl.is kom þar við. Meira »
Öskumistur yfir Hveragerði seinni partinn í gær.

Sambland ösku- og sandfoks

14:59 „Þetta mistur sem var í gær var upprunnið af Suðurlandi. Þetta er sambland af öskufjúki úr síðustu eldgosum og sandfoki af söndunum eins og Landeyjasandi, sem að er þekkt af vorlagi,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, um mistur sem var um allt sunnan- og suðvestanvert landið í gær. Meira »

Hannes klárar söfnun í dag

Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi.
14:18 „Við ljúkum þessu í dag,“ sagði Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi í samtali við mbl.is í dag þegar hann var spurður að því hvernig honum gangi að safna þeim meðmælaundirskriftum sem upp á vanti vegna framboðs hans til embættis forseta Íslands. Meira »

Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi

Í liði Valhúsaskóla voru: Ásthildur Gyða Garðarsdóttir liðsstjóri, Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir frummælandi, Geir Zoëga meðmælandi ...
14:14 Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi í Morgron eða Mælsku- og rökræðukeppni grunnskóla Reykjavíkur og nágrennis. Kepptu Hagaskóli og Valhúsaskóli til úrslita í keppninni. Meira »

„Semja látlaust við aðra flokka“

Ólöf Nordal
13:36 „Ég hlýt að skilja það þannig þegar Hreyfingin öðru hvoru er að lýsa samningaviðræðum við ríkistjórnina og aðkomu þeirra að lausn skuldavandamála, þá hlýtur það að þýða að þeir séu að fara að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfinu. Það getur ekki verið neitt annað,“ segir Ólöf Nordal. Meira »

Hátækni herskip í Reykjavíkurhöfn

Franska skipið Monge við ytri höfn Reykjavíkur í dag
14:18 Stærðarinnar herskip liggur nú við akkeri úti fyrir ytri höfn Reykjavíkur. Skipið er nokkuð óvenjulegt útlits, alhvítt að lit og búið fjölda gervihnattadiska, en um er að ræða franska rannsóknarskipið Monge. Að sögn Landhelgisgæslunnar hefur skipið heimild til nokkurra daga dvalar. Meira »

Segja Eyþór njóta fulls trausts

14:04 Formenn Sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi og fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Árborg vilja koma á framfæri eftirfarandi leiðréttingu vegna fréttar á Stöð 2 og mbl.is sem haft er eftir Helga Haraldssyni (bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins) í gærkvöldi. Meira »

Hent fram af svölum á fjórðu hæð

Lögreglan
12:11 Karlmanni var hent fram af svölum íbúðar á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Kópavogi um klukkan 10 í morgun. Maðurinn féll niður um eina hæð og lenti á svölum íbúðarinnar fyrir neðan, á þriðju hæð. Meira »

Með alvarlega áverka eftir líkamsárás

Landspítalinn í Fossvogi.
12:06 Maðurinn sem fannst blóðugur við Grandagarð í Reykjavík í gærkvöld eftir líkamsárás er með alvarlega áverka að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu Landspítalans. Maðurinn er þungt haldinn og líðan hans eftir atvikum. Árásarmaðurinn var handtekinn og málið er í rannsókn. Meira »

Ísfisktogarinn Frosti til sýnis á Grenivík

Frosti var áður gerður út frá Vestmannaeyjum og hét þá Smáey.
11:07 Ístogarinn Frosti VE-144 kemur í land á Grenivík í dag þar sem hann verður til sýnis, en Grenvíkingar keyptu nýlega skiptið frá Vestmannaeyjum þar sem það var gert út áður undir nafninu Smáey. Meira »

Birgitta og aðrir aðgerðarsinnar lýsa yfir sigri

Birgitta Jónsdóttir flytur ræðu. Lögmaður sjömenninganna segir dómsúrskurðinn mikinn sigur fyrir tjáningarfrelsið.
11:29 Dómsúrskurður var í síðustu viku felldur í máli Birgittu Jónsdóttur og sex annarra sem stefnt hafa bandarískum stjórnvöldum fyrir rétt í New York, vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga. Meira »

Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi.
10:49 Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist fjarri því að gefast upp þótt skoðanakannanir bendi til að hún njóti lítils fylgis. Herdís var í Sprengisandi og sagði m.a. að hún teldi tíma Ólafs Ragnars liðinn, 20 ár séu allt of langur tími í embætti. Herdís sagðist ósátt við framgöngu Rúv. Meira »

Á leið á alþjóðlegt Legómót myndskeið

Lego
10:45 10 krakkar úr grunnskóla Hornafjarðar eru á leið til Manheim í Þýskalandi til að keppa í alþjóðlegri Legókeppni sem fer fram í júní. 70 lið frá öllum heimsálfum eiga fulltrúa á mótinu en Hornfirðingarnir sem kalla sig The Glaciers sigruðu í Legókeppni HÍ í vetur og tryggðu sér þáttökurétt á mótinu. Meira »

Leitað að ferðalöngum á Austurlandi

Slysavarnafélagið Landsbjörg
09:23 Björgunarsveitir á Austurlandi gerðu í nótt leit að ferðamönnum sem óttast var um í Vatnsskarði neðan Stóruurðar. Farið var á vélsleðum og fjórhjólum auk þess sem göngumenn tóku þátt með hunda. Fólkið fannst í tjaldi sínu og amaði ekkert að því. Meira »

Ökumenn í vímu og til vandræða

Lögreglan
08:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af sjö ökumönnum í nótt sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis eða eiturlyfja. Einn þeirra varð valdur að umferðarslysi á Vesturlandsvegi við Vínlandsleið í nótt, þar sem hann ók á tvo aðra bíla. Allir bílarnir þrír voru dregnir af vettvangi en ekki er vitað um meiðsl á fólki. Meira »

Íslensk bók rædd í Westminster

Hallur Hallsson kynnir Vulture's Lair í Westminster.
09:39 Fjölmargir breskir þingmenn voru viðstaddir kynningu á skáldsögunni Vulture's Lair eftir blaðamanninn og rithöfundinn Hall Hallsson sem haldin var í Westminster Palace í vikunni. Bókin kemur út á vegum Bretwalda útgáfunnar en var gefin út árið 2008 hér á landi og heitir Váfugl upp á okkar ylhýra. Meira »

Leki kom að vélarvana skipi

Björgunarbátur frá Landsbjörgu. Mynd úr safni.
09:13 Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi. Meira »

Kýldi mann fyrir framan lögreglu

Lögreglan
07:44 Lögreglumenn í Reykjavík urðu vitni að því um fimmleytið í morgun að maður kýldi annan mann af engu tilefni við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu. Lögregla brást skjótt við og handtók manninn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu aðeins 4.000 kr. stk. Eru eins og nýjir (mjög ...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
Scotsman AC-45.Klakavél til sölu.
Scotsman AC-45 klakavél til sölu. Lítið notuð. Verð 165 þús. s-6151226....
 
Fit
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Framhald uppboðs á...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Lögfræðingaf...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Skrifstofustörf
Hjúkrunarfræðingur e...