Þingmenn eru ekki að staðfesta þennan samning

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í  umræðu um Icesave-samningana, að þingmenn væru ekki að fara að staðfesta þessa samninga. Hefja yrði umræðu um hvað tæki við eftir að Alþingi hefur fellt frumvarp um ríkisábyrgð vegna samninganna. 

Bjarni sagði, að ekkert hefði staðist, sem sagt hefði verið um samningana. Þannig væri svonefnt öryggisákvæði loft, gersamlega innihaldslaus yfirlýsing um að Bretar og Hollendingar séu tilbúnir til að ræða hvort að það komi til greina að breyta samningnum ef illa fer. 

Þá sagði Bjarni, að fráleitt væri að vísa til samningsvenju þegar um væri að ræða  samning, sem snúist um jafnvirði fjárlaga ríkisins. „Hann er alveg skýr um að hægt væri að ganga að sendiráðum Íslands ef Ísland lendir í vandamálum," sagði Bjarni og bætti við, að ef Ísland lendi í vanskilum samkvæmt öðrum samningum sé hægt að gjaldfella þennan samning og ganga að eigum Íslendinga í útlöndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert