Veiðiheimildir auka veðhæfni skipa sem þær fylgja

Það kemur fyrir að Landsbanki Íslands samþykkir að veita lán umfram verðmæti fiskiskips og aflahlutdeildar þess. Er þá m.a. höfð hliðsjón af tekjustreymi, fjárhagslegum styrk og öðrum atriðum sem varða lántaka. Þetta kemur fram í skriflegu svari bankans við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þar sem veiðiheimildir eru framseljanleg réttindi með ákveðnu markaðsverði skilgreinir bankinn þær sem verðmæti sem auka veðhæfni skipa sem þær tilheyra enda tekjustreymi útgerða að miklu leyti háð aðgangi að þeim veiðiheimildum.

Í svari bankans er staðfest að myndi hann leysa til sín veðsett skip myndu veðsettar veiðiheimildir fylgja því.

Loks var Landsbankinn spurður hvort fyrirhuguð fyrningarleið kæmi ekki til með að skaða hagsmuni bankans í þessu tilliti.

„Já,“ segir í svari bankans, „fyrningarleið myndi skerða verðmæti trygginga sem fylgja útlánasafni þar sem skip eru sett að veði.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert