Óvenju mikil umferð á mánudegi

Lögreglan fylgist með umferð um Vesturlandsveg.
Lögreglan fylgist með umferð um Vesturlandsveg. mbl.is

Óvenju mikil umferð hefur verið í báðar áttir gegnum umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í dag. Undir það tekur lögreglan á Sauðárkróki. Að sögn lögreglu er umferðin eins og um helgi, jafnvel hafa myndast 4-5 bíla lestir og margir eru með ferðavagn í eftirdragi.

Ekki hefur verið mikið um hraðakstur en því ber við að ökumenn séu argir og pirraðir yfir því að vera stöðvaðir. Lögreglan í Borgarnesi beinir því til ökumanna að skilja stressið eftir heima og taka í staðinn góða skapið með í sumarfríið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert