Áhyggjur af endurskipulagi
Eftir Skúla Á. Sigurðsson - skulias@mbl.is
Í nýrri þingsályktunartillögu Framsóknarflokks um endurreisn íslensku bankanna er lagt til að stærð bankanna verði miðuð við innlend innlán frekar en útlán og „skilja þannig verstu innlendu útlánin eftir í gömlu bönkunum“. Þá er lagt til að endurskipulagning bankanna verði nýtt til að hverfa frá verðtryggingu útlána og gjaldeyrishöftum. Mun þetta að mati framsóknarmanna styrkja nýju bankana.
Einnig er lagt til að ríkið móti sér „kröfuhafastefnu og eigendastefnu vegna bankanna“. Eygló Harðardóttir, ritari og þingmaður Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina hafa lagt of litla áherslu á þetta.
Vont að vera dómari í eigin sök
„Við höfum miklar áhyggjur af því hvert við erum að stefna varðandi endurskipulag bankanna,“ segir Eygló sem telur teikn á lofti um að nýju bankarnir verði mun lakari en þeir sem hrundu í fyrra. Hlutfall vanskilalána verði mun hærra og bankarnir verði einfaldlega of stórir fyrir íslenskt efnahagslíf.„Ríkið er náttúrlega mjög stór kröfuhafi í þrotabú gömlu bankanna og þarna eru miklir hagsmunaárekstrar,“ segir Eygló og kveður Framsókn telja rétt að ekki verði gefin út skuldabréf frá gömlu bönkunum til handa nýju bönkunum. Þannig væri klippt á hagsmunatengsl ríkisins gagnvart þrotabúunum.
Tillagan felur einnig í sér að óháð fyrirtæki verði fengin til að meta lánshæfi bankanna frekar en Fjármálaeftirlitið með aðstoð Seðlabankans. „Okkur finnst í hæsta máta óeðlilegt að það sé Fjármálaeftirlitið sjálft sem er að meta sína eigin aðferðafræði,“ segir Eygló.
Bloggað um fréttina
-
Vésteinn Valgarðsson Áhyggjur af einkavæðingu -
Jón Ingi Cæsarsson Framsókn gaf bankana.. kannski geta þeir metið.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Skýrsla Wyman ekki birt meðan á viðræðum stendur
- Mánudagur, 10. nóvember 2008, Innlent Mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Innlent Misskilningur að staðan sé miklu verri en talið var
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Vilja stjórnendur bankanna burt
- Fimmtudagur, 24. júní 2010, Innlent Ábyrgðin hjá gömlu bönkunum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































