Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu
Stjórn Kaupþings hefur sent starfsmönnum bankans tölvupóst þar sem fram kemur að hún hafi ekkert haft með ákvörðun bankastjórans um lögbannskröfu á fréttir
Ríkisútvarpsins að gera. Þetta kemur fram á vefnum Pressan.is.
Nýja Kaupþing og skilanefnd gamla Kaupþings fóru fram á lögbann á fréttaflutning RÚV af lánabók Kaupþings sem hafði verið lekið á netið. Málið var tekið fyrir á stjórnarfundi Kaupþings í gær og þar var gerð bókun um málið, þar sem skaðinn af því er harmaður.
Á vef Pressunnar segir að afstaða stjórnarinnar hafi komið stjórnendum bankans í opna skjöldu, því heimildir séu fyrir því að Huldu Dóru Styrmisdóttur, formanni stjórnar bankans, hafi verið kunnugt um efni fréttatilkynningar bankans um lögbannið og m.a. gert athugasemdir um orðalag hennar.
Bréf stjórnar Kaupþings til starfsmanna:
„Nýja Kaupþing varð til eftir hrun íslenska bankakerfisins þegar traust á fjármálastofnunum hafði beðið skipbrot. Stjórn hins nýja banka hefur lagt kapp á að byggja upp traust á starfsemi bankans. Ein meginstoð bankastarfsemi er að viðskiptavinir geti treyst því að upplýsingar sem þá varða séu ekki aðgengilegar óviðkomandi.Stjórn Nýja Kaupþings lýsir því þungum áhyggjum af því að upplýsingar sem varða núverandi viðskiptavini bankans og falla undir lög um bankaleynd séu öllum aðgengilegar. Jafnframt er vakin er athygli á því að trúnaðarupplýsingar sem til urðu í starfsemi gamla Kaupþings eru í vörslu ýmissa aðila og bent á mikilvægi þess að allir sem búa yfir slíkum gögnum yfirfari meðferð sína á trúnaðarupplýsingum. Rík áhersla er lögð á grandvara meðferð trúnaðarupplýsinga hjá Nýja Kaupþingi.
Stjórnin telur nauðsynlegt að fá allt upp á borðið sem varðaði hrun bankakerfisins. Hún treystir því að yfirstandandi rannsóknir muni leiða í ljós upplýsingar um orsakir og að helstu gerendur verði kallaðir til ábyrgðar samkvæmt réttum lögum.
Stjórn Nýja Kaupþings banka átti ekki þátt í ákvörðun bankastjóra sl. laugardag um lögbann á fréttaflutning RÚV af efni sem er öllum aðgengilegt á netinu og telur það ekki hafa þjónað hagsmunum bankans eða því yfirlýsta markmiði að standa vörð um trúnaðarupplýsingar. Stjórnin harmar þann skaða sem af málinu hefur hlotist fyrir orðspor bankans.“
Bloggað um fréttina
-
Árelíus Örn Þórðarson Það er ekkert traust á íslenskum bönkum. -
Einar Guðjónsson Örugglega bull -
Bergur Thorberg Bíddu..... hver stjórnar Kaupþingi? -
Gunnar Gunnarsson Litlir karlar erum vér -
Stefán Friðrik Stefánsson Stjórn Kaupþings snuprar Finn bankastjóra -
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 2. ágúst 2009, Innlent Hreiðar Már segir lánin lögleg
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Gjafagerningur sem hefur áhrif á stöðu annarra
- Þriðjudagur, 4. ágúst 2009, Innlent Falla frá lögbanni
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Launakröfur Kaupþingsstjóra fyrir dóm
- Miðvikudagur, 4. nóvember 2009, Innlent Skilanefnd ekki viðriðin samninga við 1998
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































