Tvö af tíu „bestu“ eldfjöllunum

Jules Verne gerði Snæfellsjökul að sögusviði sínu í einni bóka …
Jules Verne gerði Snæfellsjökul að sögusviði sínu í einni bóka sinna.

„Snæfellsjökull og Eldfell í Vestmannaeyjum, sem myndaðist í eldgosinu í Heimaey 1973, eru í hópi 10 „bestu“ eldfjalla heims, að því er fram kemur í úttekt blaðamanns breska dagblaðsins The Guardian.

Eldfjöllin eru valin með hliðsjón af umfjöllun um þau í bókmenntaverkum en þessi náttúrufyrirbæri þykja jafnan magnað sögusvið bóka.

Vart þarf að taka fram að Snæfellsjökull er sögusvið vísindaskáldsögu Jules Verne um svaðilför að miðju jarðar en færri vita ef til vill að Vestmannaeyjar verða fyrir valinu vegna þess að gosið þar kemur fyrir í bók Yrsu Sigurðardóttur, Aska, eða Ashes to Dust eins og hún heitir á ensku.

Nefnir greinarhöfundur, John Mullan, Yrsu „glæpasagnadrottingu Íslands“.

Vesúvíus og Pompeii koma einnig fyrir á listanum en svona samantektir eru mjög í tísku í Bretlandi um þessar mundir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert