Umferð beint um Hvalfjörð

Þrír bílar lentu saman inni í Hvalfjarðargöngunum nú síðdegis.
Þrír bílar lentu saman inni í Hvalfjarðargöngunum nú síðdegis. mbl.is/Jakob

Hvalfjarðargöngunum hefur verið lokað í kjölfar þriggja bíla áreksturs sem varð í þeim kl. 16:22. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er enginn alvarlega slasaður. Umferð er nú beint um Hvalfjörð.

Lögreglan og slökkvilið er á vettvangi og má búast við að vinnan taki tvo til þrjá tíma, en reynt verður að opna göngin svo fljótt sem auðið er.  

Þeir sem eiga leið um Vesturlandsveg eru beðnir um að sýna þessu skilning.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert