Var með kannabis í slöngubáti

Horft til Vestmannaeyja yfir Bakkafjöru.
Horft til Vestmannaeyja yfir Bakkafjöru. mbl.is/RAX

Lögreglan í Vestmannaeyjum fann 27 grömm af kannabisefni á manni, sem kom með slöngubáti til Eyja frá Bakkafjöru. Um var að ræða einn þeirra, sem lenti í hrakningum í Bakkafjöru þegar vél bátsins bilaði og sagt var frá í fréttum í vikunni.

Maðurinn viðurkenndi að eiga fíkniefnin og sagði þau til eigin neyslu.  

Maður var handtekinn í síðustu viku, grunaður um að hafa brotist inn í veitingastaðinn Kaffi Maríu. Maðurinn var handtekinn þar nærri en vitni hafði séð til manns þar inni. Áfengisflöskur frá veitingarstaðum fundust í nærliggjandi húsagarði. Hann var færður í fangageymslu en við yfirheyrslu neitaði hann allri aðild að málinu. Málið er í rannsókn. 

Aðfaranótt laugardags var tilkynnt að fjórir piltar hefðu farið inn í sundlaugargarð við íþróttamiðstöðina og baðað sig í heitu pottunum. Piltarnir voru yfirheyrðir og foreldrum þeirra tilkynnt um málið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert