Bréf til Hollands og Bretland

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir. mbl.is/Kristinn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, sendi starfsbræðrum sínum í Bretlandi og Hollandi bréf í síðustu viku, þar sem óskað er atbeina þeirra til að ná fram farsælli lausn að því er varðar Icesave-málið. Þar er einnig fjallað um hugsanlega fundi forsætisráðherranna.

Skv. heimildum mbl.is hafa formleg svör ekki borist vegna bréfaskriftanna.

Þá hittust embættismenn frá Íslandi, Hollandi og Bretlandi á óformlegum fundi í Haag í Hollandi í gær. Að sögn forsætisráðuneytisins var tilgangur fundarins að upplýsa og skiptast á skoðunum um nýsamþykkt lög á Alþingi um ríkisábyrgð á láni Breta og Hollendinga til Tryggingarsjóðs til þess að greiða lágmarkstryggingu til innstæðueigenda Icesave reikninga.

Af hálfu Íslendinga sátu fundinn embættismenn í forsætis-, fjármála- og utanríkisráðuneytum, auk Seðlabanka Íslands. Íslensku fulltrúarnir skýrðu á fundinum út einstök atriði í meðferð málsins og frumvarpið sjálft.

Ráðuneytið segir, að góður andi hafi ríkt á fundinum og taki fulltrúar landanna væntanlega upp þráðinn í næstu viku, í þeim tilgangi að ná fram sameiginlegum skilningi eins fljótt og auðið er.

Í hádeginu í dag funduðu fulltrúar forsætis-, fjármála- og utanríkisráðuneytis síðan með fjárlaganefnd Alþingis og upplýstu um framangreind atriði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert