Lagt hald á 440 kannabisplöntur

Kannabisplöntur. Mynd úr safni.
Kannabisplöntur. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Árbænum síðdegis í gær. Við húsleit í íbúðinni fundust um 440 kannabisplöntur. Um helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á þrítugsaldri tengjast málinu sem telst upplýst.

Að sögn lögreglu er aðgerðin liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert