Rýmingarsala hjá bílaleigu

Bílaleigan Thrifty stendur fyrir rýmingarsölu á notuðum bílum í fyrramálið. Verður algengur afsláttur á smærri og meðalstórum bílum  á bilinu 400 til 800 þúsund krónur en allt að 1900 þúsund krónur á þeim dýrustu.

Í tilkynningu segir, að það bílasafn, sem bílaleigan ætli að selja, spanni fullvaxna jeppa, smærri borgarbíla og allt þar á milli.

Rýmingarsalan fer fram á Bíldshöfða 6 í samstarfi við Brimborg og hefst klukkan 9 í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert