Brotist inn í gróðrarstöð og lömpum stolið

Lögreglan rannsakar þjófnaðina.
Lögreglan rannsakar þjófnaðina. mbl.is/Július

Brotist var inn í gróðrastöðina í Laugarási í nótt og þaðan stolið 13 hitalömpum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var tilkynnt um innbrotið í morgun, og er málið í rannsókn.

Þá segir lögreglan að 28 lömpum hafi verið stolið í fyrrnótt í gróðrastöðinni í Reykholti. Ekki liggur fyrir hvort málin tengjast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert