Farið verði fram á skýringar AGS
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin verði að fara opinberlega fram á það við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að hann útskýri hvers vegna það dragist svo lengi að taka mál Íslands fyrir.
Fram hefur komið hjá fjármálaráðherra að lánamál Íslands og Icesave hangi á sömu spýtunni. Sigmundur Davíð segir að fulltrúi AGS hafi fullyrt við nefndir þingsins að svo sé ekki og þetta þurfi að fá á hreint.
Sigmundur Davíð segir ljóst að samþykki Bretar og Hollendingar ekki Icesave-samninginn sé hann fallinn. „Það er ekki hægt að breyta einhliða því sem Alþingi samþykkti,“ segir hann og því þurfi að taka málið upp á ný. „Við erum á byrjunarreit en það er ekki alslæmt vegna þess að aðstæður eru allt aðrar núna í Evrópu og í heiminum heldur en við vorum í þegar við vorum síðast á byrjunarreit.“
Vilja lengri ábyrgð
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon,fjármálaráðherra, segja að að hugmyndir Breta og Hollendinga í sambandi við fyrirvara Alþingis í Icesave-málinu séu jákvæðar.um væri að ræða sameiginlegar hugmyndir Breta og Hollendinga en vildu ekki ræða þær efnislega þar sem óskað hefði verið eftir trúnaði um þær.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins og annarra fjölmiðla leggja Bretar og Hollendingar meðal annars til að ríkisábyrgðin, sem á að falla niður 2024, verði framlengd um allt að 16 ár eða til ársins 2040.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ályktaði í gærkvöldi að höfnun á fyrirvörunum fæli í sér að ríkisábyrgð vegna skuldbindinganna tæki ekki gildi. Ekki kæmi til greina að hverfa frá samþykktum fyrirvörum vegna ríkisábyrgðarinnar og ríkisstjórnin hefði ekki heimild til þess að víkja frá þeim skýru fyrirvörum sem gildandi lög kvæðu á um.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, áréttaði að það stæðist ekki lög að samþykkja breytingar án þess að taka málið aftur fyrir á þingi. Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, tók í sama streng og sagði að sættu viðsemjendur sig ekki við fyrirvarana væru samningarnir fallnir.
Bloggað um fréttina
-
Jón Ingi Cæsarsson Lausmáll prestssonur. -
Salvör Kristjana Gissurardóttir What is the Capital of Iceland? -
Ásta Hafberg S. Klemma? -
Andri Geir Arinbjarnarson Vandræði Dominique Strauss-Kahns og stjórnar IMF
Innlent »
-
Fólk er undrandi og reitt
- „Þetta gengur ágætlega“
- LSR tapaði 101 milljarði
- LV tapaði 18 milljörðum á Kaupþingi
- Gæsluvarðhald vegna hnífstungu
- Ekki fleiri á nöglum
- Ræða þarf stjórnarkjör
- Fór í aðgerð eftir hnífstungu
- „Skýrslan kemur ekki á óvart“
- Hríðarveður og slæmt skyggni
- Kúlulánin komu á óvart
- Borginni mistekist við sameiningar
- 70 stöðvaðir í eftirliti
- Grindavík reynir að innheimta lán
- Mest tap af Baugi og Existu
- Nýr formaður Varðar
- Jóna Hrönn fékk köku ársins
- Bjartsýni í bland við bölsýni
- Endurskoða þarf lög um sjóðina
- Sætti ekki eftirliti
- Brotin skipulagðari en áður
- Flytja hönnunardeildina
- Banna aukabúnað í sláttuorf
- Óeðlilegt hjartalínurit algengt
- Herör gegn misneytingu á börnum
- Sinalco seldist upp
- Rekstur lífeyrissjóða skoðaður
- Kostnaður við Herjólf umfram heimildir
- Ræða sölu til að fjármagna lán
- Snjómokstur langt yfir áætlun
- Niðurstöður ómskoðunar rannsakaðar
- Ráðuneytið þarf að efla eftirlit
- Líti á flugvöllinn sem tækifæri
- Klofin þjóð í afstöðu til ákæru
- Áfram í haldi vegna smygls
- Auka þarf rannsóknarheimildir
- Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri
- Greiðir 5,2 milljarða í þróunarsjóð EFTA
- Harður árekstur við Grundartanga
- Allir sammála um endurskoðun
- Kannabisræktun á eyðibýli
- Vilja dýpri umræðu um aðildarferlið
- Meðferðin nú veitt á Íslandi
- Illugi: Bankarnir og skuldir heimilanna
- Skurðdeild lokað vegna sýkingar
- Kærð fyrir ólögmæta háttsemi
- Barist gegn barnaníði á heimsvísu
- Páskasúkkulaði frá ABC
- Sjóvá endurgreiðir 381 milljón
- Bilun á netsambandi Vodafone
- Hallur Hallsson: RÚV málpípa valdhafanna
- Vilja endurnýja sýningarbúnað
- Hesthús verði skattlögð eins
- Grafalvarleg staða Sandgerðisbæjar
- Landi fannst í heimahúsi
- Steinn Jónsson: PIP-púðar og gæðavottorð
- Snjór á Holtavörðuheiði
- E-töflur á Akureyri
- Gistinóttum fjölgar um 27% í desember
- Ferðamönnum fjölgar um 17,5%
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Skuldabyrðin enn meiri
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Sterkari staða eftir endurskoðun
- Sunnudagur, 18. október 2009, Innlent Óviðunandi niðurstaða
- Sunnudagur, 21. febrúar 2010, Innlent Á skjön við fyrri viðræður
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Stærsta kúlulán Íslandssögunnar
-
Átök fram á nóttu í Egyptalandi
-
Drottning plantar afmælistré
-
Sýrlenskar konur mótmæla líka
-
Meira en 200 látnir vegna kulda
-
Verðum að læra af reynslunni
-
Sturtuðu mold á götur Parísar
-
Fólk er undrandi og reitt
-
Hverjir ná árangri á Twitter?





































