Stórtækir auðlindaskattar
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Þetta eru tölur og áform sem ég sé ekki að gangi upp á nokkurn hátt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Í fjárlagafrumvarpi er áformaður sextán milljarða tekjuauki af umverfis-, orku- og auðlindasköttum. Það gæti þýtt milljarðaskattheimtu af hverju álfyrirtæki fyrir sig, þegar fram í sækir, en þau eru kaupendur að nærri þremur fjórðu allrar raforku í landinu.
Viðmælendur hafa þann fyrirvara á að hugmyndin sé óútfærð í frumvarpinu, en Ólafur Teitur Guðnason, talsmaður RioTinto Alcan í Straumsvík, segir þetta stórtæk áform sem fari fram úr öllu meðalhófi. Að óbreyttu gætu þau þurrkað út allan hagnað fyrirtækisins og gott betur. „Þessi áform um skattheimtu hljóta að setja stórkostlegt strik í reikninginn fyrir alla uppbyggingu orkufrekrar starfsemi,“ segir Vilhjálmur Egilsson.
Hlífa viðkvæmustu málunum
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir að vandinn í ríkisfjármálum sé gríðarlega mikill og fjárlögin beri þess merki. Lengi hafi verið ljóst að taka yrði á vandanum, bæði með niðurskurði og skattahækkunum.Í fljótu bragði virðist frumvarpið hins vegar samrýmast stöðugleikasáttmálanum. Heildarhallinn sem gert sé ráð fyrir sé eftir væntingum. Vissulega sé mikill hluti af aðgerðunum, 50-60%, fólginn í hærri sköttum og margt í frumvarpinu sé óútfært. Hins vegar hafi verið miðað við það, við gerð stöðugleikasáttmálans, að 45% af vandanum verði leyst með skattahækkunum næstu þrjú árin.
Harðast yrði gengið fram í þeim fyrst, en síðan slakað á.
Tekjur ríkissjóðs auknar um 61 milljarð
Heildarhalli á ríkissjóði 2010 er áætlaður 87,4 milljarðar samkvæmt frumvarpinu. Í krónum talið verða útgjöld ríkissjóðs skorin niður um 43 milljarða króna en tekjurnar auknar um 61 milljarð. Þetta eru því einhver sársaukafyllstu fjárlög í sögunni. Áætlað er að beinir skattar hækki um 37,6 milljarða. Á meðal margvíslegra hækkana er 10% hækkun bensín-, olíu- og bifreiðagjalda. Á sama tíma eiga fjárveitingar til vegaframkvæmda að lækka gríðarlega, um tólf milljarða.
Ný þjóðhagsspá gerir ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann rýrni um 10,4% á þessu ári og 11,4% á því næsta. Hann verður þá svipaður kaupmætti áranna 1999 og 2000.
Bloggað um fréttina
-
Sigurjón Sveinsson Ætla kommar að drepa gullgæsina með sköttum? -
Ásgrímur Hartmannsson Þetta gengur ekki alveg upp... -
Sævar Helgason Stóriðjuskattar - gengismunur ? -
FrizziFretnagli Steingrímur Júdas stendur undir nafni -
Auðun Gíslason Hin alþekkta undirgefni... -
-
Benedikt V. Warén Við kusum þetta yfir okkur.... -
Sigurður Jónsson Vinstri grænir fundu leið til að fæla erlenda fjárfesta frá ... -
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Háskalegar skattahækkanir
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Munu ekki una skattahækkunum sem lengja kreppuna
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Verið að vísa SA frá stöðugleikasáttmálanum
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent Vonar að mál fari nú að hreyfast
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Innlent Þurrausinn í nóvember
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































