„Þungt höggvið í ráðstöfunartekjur heimila“

Ráðstöfunartekjur hafa dregist saman. stækka

Ráðstöfunartekjur hafa dregist saman. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Morgunblaðið Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is
Viðskiptaráð lítur svo á að óeðlilega miklum bagga sé velt á hinn almenna vinnumarkað miðað við hið opinbera, að sögn Frosta Ólafssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands, um aukna skattheimtu einsog fram kemur í fjárlagafrumvarpinu sem gefið var út 1. október. Þar er áætlað að skatttekjur vegna einstaklinga aukist um 37 milljarða.

Viðskiptaráð mun á næstu vikum kanna fjárlögin til hlítar og mögulegar leiðir til úrlausnar á bágri stöðu ríkissjóðs.

Grófir útreikningar sýna að að gefnum ákveðnum, mjög einfölduðum forsendum megi áætla að skattar á hvern vinnandi einstakling á landinu hækki um 230.000 krónur á ári, sem gera 20.000 krónur á mánuði.

Að jafnaði eru 160.000 vinnandi menn á Íslandi. Áætlaður tekjuskattur á einstaklinga árið 2009 er 106.700 milljónir. Í frumvarpinu fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir að tekjur vegna einstaklinga aukist í 143.500 milljónir. Mismunurinn er 37.000 milljónir. Þannig fæst meðaltalið 230.000 krónur á ári.

Hækkanir 2010

Í fjárlagafrumvarpinu segir að áætlun um virðisaukaskatt taki mið af einkaneyslu og fleiri liðum innlendrar eftirspurnar. Gert er ráð fyrir 6,1% minni einkaneyslu en á móti kemur að samneyslan dregst minna saman. Reiknað er með að hluti aðgerða til að bæta afkomu ríkissjóðs muni verða með breytingum á virðisaukaskattskerfinu og auki tekjur um 8 milljarða. Tekjur af virðisaukaskatti aukist þannig um 3% á ári. Gert er ráð fyrir 10% hækkun vörugjalda af bensíni og olíu í byrjun árs 2010. Bensíngjöld verði þannig 12,5 milljarðar en olíugjald 6,5 milljarðar.

Á árunum 2008-2009 hafa áfengis- og tóbaksgjöld hækkað tvisvar. Í byrjun árs 2010 er enn reiknað með hækkun þessara gjalda um 10%.

S&S

Hvað er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs verði miklar í frumvarpinu? Í áætlun fyrir árið 2009 eru þær 406,9 milljarðar. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2010 er gert ráð fyrir að þær verði 468,2 milljarðar.

Hverjir verða skattar á vöru og þjónustu?Gert er ráð fyrir að virðisaukaskattur, almenn og sértæk vörugjöld og aðrir skattar á vöru og þjónustu nemi ríflega 201 milljarði kr. á árinu 2010. Aukningin er 18,1% og 12,5% umfram áætlaða verðbólgu.

En hversu miklu á virðisaukaskatturinn sjálfur að skila? Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að hann skili 125,2 milljörðum.

Dregst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman? Já, milli áranna 2009 og 2010 dregst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman um 11,9%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Standard Poodle hvolpar til sölu
Tilbúnir til afhendingar, ættbók frá HRFÍ, líf og sjúkdóma trygging frá VÍS. Fre...
Palomino Colt fellihýsi til sölu
Mjög vel með farið 9 feta Palomino Colt árg 2002 ásamt fortjaldi+dúk. Sólarsella...
Ford Econoline 250 4x4 Til sölu
Árg 91 Húsbíll Skoð 2011 Ek 200 þkm 8cyl Bensín Ssk. Vél yfirfarin fyrir 40þ km ...
BÍLAR ÓSKAST Á SKRÁ
Bílalíf bílasala ... í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bila...
 
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...