Jafnræðis milli landshluta ekki gætt í niðurskurði

Sauðárkrókur.
Sauðárkrókur. www.mats.is

Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar undrast þær áherslur sem fram hafa komið í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er lúta að landsbyggðinni og sérstaklega að Norðurlandi vestra. Þetta kemu fram í álykun frá félaginu í dag.

„Allir eru meðvitaðir um að það þarf að draga saman í ríkisrekstri en fundurinn gerir þá kröfu að í því verkefni hafi ríkisstjórnin það að leiðarljósi að jafnræðis sé gætt milli landshluta og að sérstaklega sé horft til þess að stór svæði utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar nutu að engu eða litlu leiti þess uppgangs sem var fyrir efnahagshrunið,“ segir í ályktun Framsóknarmanna.


„Niðurlagning sýslumannsembætta,Lögreglu, héraðsdómara og niðurskurður á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki eru dæmi um forkastanleg vinnubrögð þar sem þessa jafnræðis er ekki gætt. Ekki hefur verið sýnt fram á sparnað af þessum tillögum en þær munu hinsvegar leiða af sér verra aðgengi að þjónustu og aukinn kostnað við að fá þjónustu.


Fundurinn skorar á ríkisstjórnina að setja fram trúverðuga atvinnustefnu er leiði til uppbyggingarsamfélagsins en varar við hugmyndum um stórfelldar skattahækkanir, fyrningaleið í sjávarútvegi sem og skattlagninu orkusölu því allt þetta er til þess að stöðva fjárfestingu og framþróun.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka