Mikill verðmunur á dekkjaskiptum

Allt að 5000 króna verðmunur er á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu dekkja á jeppa með sautján tommu álfelgum sem er 67% verðmunur. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 49 þjónustuaðilum víðsvegar á landinu í gær.

Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling á smábílum á fimmtán tommu felgum var dýrust hjá Hjólbarðaþjónustu Áhaldaleigunnar í Vestmannaeyjum þar sem hún kostaði 7500 kr. en ódýrust hjá Hjólbarðaþjónustu Hafnarfjarðar, 4990 kr.  Verðmunurinn er 2510 kr. eða 50%.  Þjónustan fyrir smábíla hefur hækkað að meðaltali um 6% frá könnun sem ASÍ gerði þann 17. apríl sl.

Hæsta verðið á þjónustu fyrir jepplinga með sautján tommu álfelgum var hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels í Kópavogi, 9980 kr. en lægsta verðið er hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars, Fáskrúðsfirði, 6000 kr.  Þjónustan fyrir jepplinga á sautján tommu stálfelgum var ódýrust hjá Bílabjörgun á Akureyri, 5900 kr. en dýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels 7290 kr.

Dekkjaskipti á meðalstórum jeppa með sautján tommu álfelgum er dýrust hjá Bílabót á. Sauðárkróki en ódýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði, 7500 kr.

Dekkjahöllin á Egilstöðum, Akureyri og í Reykjavík neituðu þátttöku í verðkönnun verðlagseftirlitsins.

Könnunin í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert