75 frambjóðendur ekki skilað upplýsingum

75 frambjóðendur til þings eiga eftir að gera grein fyrir …
75 frambjóðendur til þings eiga eftir að gera grein fyrir kostnaði við framboð. Ómar Óskarsson

Alls 243 frambjóðendur af þeim 318 sem þátt tóku í prófkjörum vegna alþingiskosninganna í vor höfðu í gær skilað Ríkisendurskoðun upplýsingum um kostnað af prófkjörsbaráttu sinni.

Nokkrir hafa verið að skila inn upplýsingum nú í vikunni en formlegur frestur rann út sl. sunnudagskvöld. 75 eiga eftir að skila inn pappírum.

„Heimturnar eru ekki sem skyldi,“ sagði Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert