Enn samdráttur í smásölu

Verð á dagvöru hækkaði um 14,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Verð á dagvöru hækkaði um 14,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. mbl.is/Árni Sæberg

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,9% á föstu verðlagi, en þá er miðað við þá krónutölu sem er í gangi hvert sinn sem mælt er óháð öllum öðrum áhrifum, í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 9.7% á breytilegu verðlagi, en þá á sér stað leiðrétting á verðlaginu með því að taka tillit til verðbreytinga sem hafa orðið á tímabilinu. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í október 0,3% frá síðasta mánuði á föstu verðlagi og 4,1% frá október mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 14,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.
 
Verðhækkun áfengis 33,7%

Velta í áfengisverslun minnkaði um 25,1% í október miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 0,2% á breytilegu verðlagi. Salan dróst saman um 0,7% frá september mánuði þegar tekið hefur verið tillit til verðlagsbreytinga og árstíðarbundinna þátta. Verð á áfengi var 33,7% hærra í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.
 
Fataverslun var 11,7% minni í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 5,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hafði í október hækkað um 19,1% frá sama mánuði í fyrra.
 
Velta skóverslunar minnkaði um 18,7% í október á föstu verðlagi og jókst um 2,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Í október hafði verð á skóm hækkað um 25,7% frá síðasta ári.
 
Samdráttur í húsgagnasölu 24,1%

Velta húsgagnaverslana var um 24,1% minni í október en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 14,7% minni á breytilegu verðlagi. Þess má geta að velta síðasta mánaðar var einnig lægri en hún var í október árið 2007. Í síðastliðnum mánuði höfðu húsgögn hækkað um 12,3% frá sama tíma árið áður.
 
Sala á raftækjum dróst í október saman um 28,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 6,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna september og október dróst raftækjasala saman um 1,5% á föstu verðlagi.

Í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar kemur fram að enn sjást ekki merki um bata í smásöluverslun og stendur samdráttarskeið yfir sem segja má að hafi hafist á vormánuðum ársins 2008.

Sem fyrr er það sala varanlegra neysluvara sem hefur dregist hvað mest saman en síðan Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að safna gögnum um sölu húsgagna í ágúst 2007 hefur velta minnkað um nær helming. Raunlækkun veltu á þessum rúmu tveim árum er yfir 60%, þ.e. þegar tekið hefur verið tillit til hækkunar verðlags. Svipuð staða birtist þegar horft er til sölu raftækja, en á þeim markaði er samdráttur verulegur.
 
„Velta í áfengissölu lækkaði um rúm 25% milli ára í október síðastliðnum á föstu verðlagi en hafa verður í huga að sérstakar aðstæður voru uppi í október 2008. Föstudaginn 31. október í fyrra tóku Vínbúðirnar við rúmlega 44 þúsund viðskiptavinum, þegar fréttir bárust af því að hækkun á áfengisgjaldi væri væntanleg næsta dag. Veruleg veltuaukning mældist vegna þessa í október á kostnað veltunnar í næsta mánuði á eftir. Það má því ætla að munur milli ára í áfengissölu minnki í nóvember.
 
Dagvöruverslun dróst saman þriðja mánuðinn í röð nú í október, ef litið er á árstíðarleiðréttar tölur á föstu verðlagi. Veltan er áfram lægri að raungildi en hún var árin 2008 og einnig 2007. Fróðlegt verður að sjá á næstu mánuðum hvort frekari samdráttur verði eða hvort nú fari að rofa til.
 
Væntingavísitala Capacent Gallup hefur hækkað undanfarna þrjá mánuði og er nú hærri en hún hefur áður verið eftir að bankarnir hrundu í október. Það eru afar jákvæðar fréttir fyrir verslun í landinu, þó enn vanti upp á til að tiltrú og væntingar til efnahags- og atvinnumála teljist góðar. Meðalkaupmáttur fyrstu þrjá fjórðunga þessa árs var 8,0% minni en á sama tímabili á síðasta ári samkvæmt mælingum Hagstofunnar.

Þá kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar að innlend greiðslukortavelta hafi dregist saman um 17,4% að raunvirði í janúar til september á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra." 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert