Boða nýtt greiðsluverkfall

Hagsmunasamtök heimilanna hafa boðað til greiðsluverkfalls að nýju og á það að standa frá 15. nóvember til 10. desember. Hvetja samtökin fólk til að greiða ekki af lánum á þeim tíma og jafnfram að taka peninga sína út úr bönkunum.

Í ályktun frá greiðsluverkfallsstjórn samtakanna segir, að á sama tíma og ríkisstjórnin og bankarnir reyni að telja fólki trú um að verið sé að létta byrðum að heimilunum versni ástandið stöðugt. Boðuð greiðslujöfnun muni stórauka greiðslubyrði af lánum þegar til lengdar lætur og staðfesta eignaupptöku fjármálastofnana hjá heimilum landsmanna. Á sama tíma ætli bankarnir sér að nota það svigrúm sem er til niðurfærslu lána til að hygla sínum innherjum og vildarvinum.

Fram kemur í ályktuninni, að fyrsta greiðsluverkfall samtakanna hafi fengið góðar undirtektir hjá almenningi og stefnt sé að því að beita þessu vopni með vaxandi þunga þangað til gengið verði til samningaviðræðna við samtökin og tekið mið af kröfum þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert