Fréttaskýring: Áhrif skattahækkana ekki enn að fullu ljós

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, virðist þungt hugsi við umræður í þinginu í gær og hið ... stækka

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, virðist þungt hugsi við umræður í þinginu í gær og hið sama má segja um kollega hans, Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Eftir Guðna Einarsson

Endanleg útfærsla boðaðra skattabreytinga verður ekki að fullu ljós fyrr en frumvarp þar að lútandi verður lagt fram, að mati skattasérfræðings sem Morgunblaðið ræddi við. Til dæmis er eftir að útfæra hugmynd ríkisstjórnarinnar um jöfnun tekna milli hjóna eða sambýlisfólks hvað varðar skattheimtu.

Ljóst er að skatttekjur ríkissjóðs munu aukast um 50 milljarða en óvíst er um mörg önnur áhrif þessara breytinga. Greining Íslandsbanka telur að skattabreytingarnar muni leiða til um 1,3% hækkunar á vísitölu neysluverðs (VN) á fyrsta fjórðungi næsta árs. Þar af er hækkun virðisaukaskatts talin valda 0,9% hækkun á VN. Hækkun á vörugjöldum, orku-, umhverfis og auðlindasköttum leiði að auki til 0,4% hækkunar VN. Af skattbreytingunum muni því leiða 15-16 milljarða króna hækkun á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum.

Vaskurinn hækkar um 18.814 á mann á ári

Breytingar á virðisaukaskatti eiga að skila sex milljörðum í ríkissjóð. Virðisaukaskattur í efsta þrepi hækkar í 25% og tekið er upp nýtt 14% þrep. Í það flytjast ýmsir flokkar vöru og þjónustu sem borið hafa 7% virðisaukaskatt. Ef hækkuninni er deilt niður á alla landsmenn, sem voru 318.906 þann 1. október s.l., nemur hún 18.814 kr. á hvert mannsbarn. Hver fjögurra manna fjölskylda verður því að borga rúmlega 75 þúsund krónum meira í virðisaukaskatt á ári eftir hækkunina.

Hótel- og veitingamenn samþykktu á fundi SAF í gær harðorð mótmæli við því misrétti sem fælist í tvöföldu kerfi virðisaukaskatts á matsölu. Þeir benda á að samkvæmt því kerfi sem nú á að taka upp fari það eftir starfsleyfi þess sem selur matinn hve háan virðisaukaskatt viðskiptavinurinn þarf að greiða. Sé veitingaleyfi á staðnum muni viðskiptavinurinn borga 14% virðisaukaskatt. Ef samskonar tilbúinn matur sé keyptur í verslun eða sjoppu verði greiddur 7% virðisaukaskattur. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skora á stjórnvöld að draga þessa tillögu til baka enda leiði flókið og óskiljanlegt skattkerfi til aukinnar svartrar atvinnustarfsemi. Þá ætlar SAF að leita til samkeppnisyfirvalda vegna þessa máls.

 Fjármagnstekjuskattur hækkar um 80%

Í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að fjármagnstekjuskattur muni hækka úr 15% í 18% sem er 20% hækkun. Fjármagnstekjuskatturinn var hækkaður úr 10% í 15% þann 1. júlí síðastliðinn. Lögfræðingur sem rætt var við benti á að sú ráðstöfun hefði aðeins átt að vera til bráðabirgða. Því sé í raun verið að hækka fjármagnstekjuskattinn nú úr 10% í 18% eða um 80%.

Viðmælandi taldi líklegt að hækkun fjármagnstekjuskattsins mundi leiða til hækkunar húsnæðiskostnaðar. Með þessu væri verið að hækka einn helsta kostnaðarlið þeirra og hækkuninni yrði væntanlega velt beint út í verðlagið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Óska eftir 4 herbergja íbúð á svæði 108 til leigu
Kæru íbúðaeigendur. Við fjölskyldan erum að leita að leiguíbúð í nágrenni Rétta...
Fertugur er í dag Haraldur Guðni Eiðsson
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...