Hefji Icesave upp úr pólítskum skotgröfum
Stjórn Heimdallar hefur samþykkt ályktun um Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar og eru þingmenn hvattir til að hefja málið upp úr skotgröfum og flokkapólitík.
Ályktunin er eftirfarandi:
„Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að draga andann djúpt í Icesave-málinu. Hafa verður hugfast að margt hefur breyst í heiminum frá því í október 2008 og ekki er sami þrýstingur og áhyggjur í heiminum vegna hugsanlegs allsherjarhruns á fjármálamörkuðum og var þá. Þær óréttlætanlegu aðgerðir, sem erlend ríki sýndu á þeim tíma og beindust m.a. með afar ósanngjörnum hætti gegn Íslandi, eiga rætur sínar að rekja til þess óvissuástands sem þá ríkti í heiminum. Íslenskir ráðamenn eiga ekki að gangast undir og aðlagast þeim afarkostum sem þjóðinni voru settir á þeim tíma og við stöndum enn frammi fyrir heldur berjast fyrir betri niðurstöðu í málinu. Núverandi samningur, sem farið er fram á ríkisábyrgð fyrir, er enda sambærilegur við að hugsanlegt dómsmál hefði farið á versta mögulegan veg.
Enn er mikið óunnið við að kynna málsstað Íslands í Icesave-málinu út á við. Heimdallur leggur til að í stað þess að afgreiða ríkisábyrgð á Icesave-málinu setji stjórnvöld málið í salt í bili og einbeiti sér þess í stað að því að kynna málsstað Íslands með skipulögðum hætti, einkum gagnvart þingflokkum, stjórnvöldum og fjölmiðlum í Evrópu. Í slíkri kynningu ber að leggja áherslu á þær byrðar og áhættu sem gert er ráð fyrir að örríkið Ísland axli, þá meðferð sem okkur var sýnd með setningu hryðjuverkalaga af hálfu breskra stjórnvalda og með hvaða hætti Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur verið beitt í málinu.
Augljóst er að Icesave-málið er eitt stærsta mál sem íslenskt stjórnkerfi og íslenskir stjórnmálamenn hafa glímt við. Niðurstaða málsins mun hafa mikil áhrif á efnahagslegan styrk þjóðarinnar næstu áratugina og örlög komandi kynslóða í landinu. Það er því skýlaus krafa að allt verði gert sem í okkar valdi stendur til þess að berjast fyrir okkar málsstað og að kjörnir fulltrúar hefji málið upp úr skotgröfum og flokkapólitík á næstu misserum.“
Bloggað um fréttina
-
Harpa Magnúsdóttir Gamall nemur, ungur temur ! -
Sigurður Haraldsson ÁFRAMM ÍSLAND.
Innlent »
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent „Þá kemur október aftur“
- Fimmtudagur, 16. júlí 2009, Innlent Þykir leitt að kjósa gegn aðild
- Mánudagur, 24. ágúst 2009, Innlent Funda um Icesave
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Fagna samstöðu á Alþingi
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Innlent De Reya svarar Steingrími
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































