Brutust inn í bílasölu

Lögreglan
Lögreglan

Um tvöleytið í nótt var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við bílasölu í Nethyl í Reykjavík. Þegar lögregla kom á staðinn fann hún þar fyrir tvo unga pilta með lambhúshettur og vasaljós sem höfðu brotist þar inn.

Þeir höfðu týnt til eitt og annað verðmætt sem þeir hugðust greinilega hafa á brott með sér á vettvangi áður en lögregla greip í taumana. Piltarnir, sem báðir eru 17 ára gamlir, voru handteknir og gistu fangageymslur í nótt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert