Gæti endurvakið diplómatíska deilu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræðir við blaðamenn á Bessastöðum …
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræðir við blaðamenn á Bessastöðum í dag. mbl.is/Ómar

Sú ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að fresta því að taka afstöðu til þess hvort hann staðfestir Icesave-lögin eða ekki, hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla.

Breska blaðið Daily Telegraph segir í kvöld að grípi forsetinn inn í atburðarásina gæti það leitt til þess að diplómatísk deila milli Bretlands og Íslands, sem staðið hefur í 18 mánuði, blossi upp að nýju.

Synji forsetinn lögunum staðfestingar kunni þau að verða lögð fyrir fordæmalausa þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þau myndu mæta mikilli andstöðu.  

Blaðið fjallar um samþykkt Icesave-laganna á Alþingi í gærkvöldi og hefur eftir ónafngreindum talsmanni breska fjármálaráðuneytisins, að sú samþykkt muni gera Íslandi kleift að endurheimta traust á alþjóðlegum mörkuðum og einbeita sér að efnahagsuppbyggingu. 

Þá segir blaðið að alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor´s hafi ekki beðið boðanna og breytt horfum vegna lánshæfismats Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Hafi fyrirtækið vísað til þess, að niðurstaða Alþingis leiði til þess að aðgangur Íslands að lánsfé frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og nágrannalöndum opnist.

Frétt Daily Telegraph

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert