415 ökumenn brotlegir á Sæbraut

Lögreglan fylgist reglulega með umferðarhraða ökumanna.
Lögreglan fylgist reglulega með umferðarhraða ökumanna.

 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 415 ökumanna á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudegi til fimmtudags. Um var að ræða 6% af þeim ökutækjum sem fóru þarna um, yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar.

Á umræddu tímabili fóru 6.547 ökutæki eftir Sæbraut til suðurs, að því er segir á vef lögreglunnar. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100 km hraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert