Fundir í öllum landshlutum

Frá þjóðfundinum í Laugardalshöll í vetur. stækka

Frá þjóðfundinum í Laugardalshöll í vetur. mbl.is/ Kristinn

Á tímabilinu 30. janúar nk. til 20. mars verða haldnir átta fundir í öllum landshlutum með þjóðfundarsniði. Þar munu koma saman fulltrúar landshlutanna, sérfræðingar og fulltrúar hagsmunaaðila ásamt jafnmörgum einstaklingum úr röðum heimamanna sem valdir verða með úrtaki úr þjóðskrá líkt og gert var fyrir Þjóðfundinn í Laugardalshöll yfir landið í heild.

Fundirnir verða haldnir í samræmi við sóknaráætlun 20/20, sem er á vegum stjórnvalda og er ætlað að ná fram samstöðu um lykilákvarðanir og framtíðarsýn fyrir atvinnulíf og samfélag.  Búist er við 100 til 200 manns á hvern fund í landshlutunum.

Verkefnið á þjóðfundum landshlutanna verður að setja fram hugmyndir um framtíðaráform á viðkomandi svæði til eflingar atvinnulífs og samfélags á grundvelli sérstöðu og styrkleika svæðanna. Þessi vinna verður grundvöllur að áætlun hvers landshluta innan þeirrar sóknaráætlunar sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að gerð verði og tillaga til þingsályktunar hefur verið lögð fram um á Alþingi.

Gert er ráð fyrir að 2-3 ráðherrar úr ríkisstjórninni verði á hverjum þjóðfundi í landshlutunum ásamt fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Undirbúningur er í höndum stýrihóps um sóknaráætlun en framkvæmd þjóðfundanna átta verður á vegum landshlutasamtaka á hverjum stað.

Austfirðingar hittast  laugardaginn 30. janúar á Egilsstöðum, Vestfirðingar laugardaginn 6. febrúar á Ísafirði, Norðvestlendingar laugardaginn 13. febrúar á Sauðárkróki, Vestlendingar laugardaginn 20. febrúar í Borgarnesi, Norðaustlendingar laugardaginn 27. febrúar á Akureyri, Sunnlendingar laugardaginn 6. mars á Selfossi, Suðurnesjamenn laugardaginn 13. mars í Reykjanesbæ, og höfuðborgarbúar í Reykjavík laugardaginn 20. mars.

Á upplýsingavef stjórnvalda, island.is, hefur verið opnað sérstakt vefsvæði 20/20 Sóknaráætlunar fyrir Ísland. Þar er hægt að sjá út á hvað verkefnið gengur, skipulag hvers verkþáttar um sig og hvernig fyrirhuguð framvinda þess verður. Bætt verður við efni jafnóðum og það fellur til á næstu vikum og mánuðum.

Þann 28. janúar boðar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, jafnframt til opins fundar um Sóknaráætlun á Grand hóteli í Reykjavík. Þar munu grasrótarhópar, hagsmunaaðilar og samtök sem sett hafa fram stefnumótun fyrir atvinnulíf og samfélag á undanförnum máuðum gera grein fyrir niðurstöðum sínum og hvernig hún getur nýst fyrir stefnumótun stjórnvalda og endurreisn Íslands.

Á vormánuðum er verða jafnframt boðaðir opnir fundir undir merkjum sóknaráætlunar um umbætur og endurskipulagningu í opinberri þjónustu, menntamál, atvinnustefnu, bætta samkeppnishæfni, umhverfismál og náttúruvernd auk fundar þar sem dregnar verða saman sóknaráætlanir landshlutanna.

Þá efnir Jóhanna til fundar á Selfossi n.k. fimmtudag 21. janúar þar sem saman munu koma þeir sem unnið hafa að undirbúningi sóknaráætlunar 20/20. Markmið fundarins er að sögn forsætisráðuneytisins að draga fram helstu styrkleika og veikleika íslensk samfélags, og leggja mat á tækifæri og ógnanir sem blasa við þjóðinni. Á þeim grunni sé ætlunin að skilgreina það leiðarljós sem sóknaráætlunin skal fylgja.

Í stýrihópi Sóknaráætlunar 20/20 eru Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður bæjarráðs á Akureyri og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Tabbert DaVinci 07, 540 dekurhús m.kojum
Tabbert DaVinci 2007 kojuhús. Einstaklega vel með farið. 6 svefnpláss. Stórt for...
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...