Lögreglumenn mótmæla töf nýrra kjarasamninga

Lögreglumenn við Alþingishúsið.
Lögreglumenn við Alþingishúsið. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Aðalfundur Lögreglufélags Norðurlands vestra mótmælir sinnuleysi samninganefndar ríkisins gagnvart samninganefnd Landssambands lögreglumanna. Í ályktun fundarins segir að lögreglumenn hafa verið án kjarasamnings á annað ár og lítið þokast í samkomulagsátt.

Lögreglumenn hafi sýnt mikið langlundargeð en þolinmæði þeirra sé á þrotum. „Við skorum á samningsaðila að setjast niður og ná samkomulagi um nýjan kjarasamning fyrir lögreglumenn.  Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt og þurfa því lögreglumenn að beita óhefðbundnum aðferðum til að leggja áherslu á stöðu sína.

Einnig velta lögreglumenn innan LNV því fyrir sér hvort að sinnuleysi viðsemjenda okkar og töf á samkomulagi hafi eitthvað með það að gera að verkfallsrétturinn sé ekki til staðar."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert