Fyrst og fremst sigur flokksins
Eiríkur Finnur Greipsson.
„Í mínum huga er þetta fyrst og fremst sigur Sjálfstæðisflokksins í þessu litla bæjarfélagi. Við erum með 992 á kjörskrá, sem er mikil fjölgun félaga, og það er ekki sjálfgefið að ná svona góðum árangri miðað við þær aðstæður sem hafa verið uppi í landinu. Ég er bæði hrærður og stoltur af sjálfstæðismönnum í Ísafjarðarbæ að hafa náð að hrista sig saman," segir Eiríkur Finnur Greipsson um úrslitin í Ísafjarðarbæ hjá Sjálfstæðisflokknum.
Hann segir listann vera vel skipaðan og allir frambjóðendur verið mjög vel hæfir til að setjast í bæjarstjórn. „Þessi stuðningur sem ég fékk, sem er 61% í fyrsta sæti og það eru 89% kjósenda sem setja mig á blað, er meira en ég gat látið mig dreyma um fyrirfram. Ég er stoltur Ísfirðingur og stoltur sjálfstæðismaður og tel að sjálfstæðismenn eigi eftir að sýna enn meiri styrk og stuðning fram til vors," segir Eiríkur.
Sjálfstæðisflokkurinn er með fjóra bæjarfulltrúa af níu í Ísafjarðarbæ og myndar meirihluta með framsóknarmönnum. Af sex efstu í prófkjörinu eru aðeins tveir bæjarfulltrúar þannig að nýliðun í bæjarstjórn verður nokkur. Gísli H. Halldórsson varð í öðru sæti en Guðný Stefanía Stefánsdóttir endaði í sjötta, hafði sett markið á 2. sætið.
Mikil fjölgun flokksfélaga
Flokksmönnum fjölgaði verulega fyrir prófkjörið, voru ríflega 600 í byrjun þessa mánaðar en endaði í nærri 1.000 á kjörskrá. Eiríkur Finnur sat á sínum tíma lengi í sveitarstjórn Flateyrar sem oddviti, áður en sameining varð við Ísafjörð árið 1996. Að hans sögn var töluverð fjölgun félagsmanna á Flateyri en það skýri ekki að öllu leyti þá góðu kosningu sem hann fékk.
„Ég er ekki bara fulltrúi Flateyrar eða þorpanna og ætla fyrst og fremst að sinna því hlutverki að vera oddviti þessa lista. Hann verður að gæta hagsmuna heildarinnar umfram allt annað," segir Eiríkur, og vildi að lokum koma á framfæri innilegu þakklæti til sinna ötulu stuðningsmanna í Ísafjarðarbæ.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Sigur flokksins! -
Jón Snæbjörnsson Nákvæmlega sigur flokksins ......... -
Magnús Jónsson Loksins einhver sem ég þekki sem sigrar :-) -
Óðinn Þórisson Sigur Sjálfstæðisflokksins
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. október 2009, Innlent Íhugar að óska eftir oddvitasætinu
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Ísfirskir sjálfstæðismenn í prófkjör
- Laugardagur, 13. febrúar 2010, Innlent Eiríkur sigraði á Ísafirði
- Mánudagur, 31. maí 2010, Innlent Samkomulag á Ísafirði
- Laugardagur, 29. maí 2010, Innlent Skynsamlegt að halda sama meirihluta
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu




































