Gaf kvennadeild 30.000 dollara

Kvennadeild Landspítalans fékk rausnarlegan styrk úr Sonja Foundation.
Kvennadeild Landspítalans fékk rausnarlegan styrk úr Sonja Foundation. mbl.is/Júlíus

Kvennadeild Landspítalans hefur fengið styrk úr styrktarsjóði Sonju De Zorilla, Sonja Foundation, að upphæð 30.000 bandaríkjadalir (3.864.000 ÍKR). Styrkurinn hefur verið greiddur í áföngum og var lokaafgreiðslan nýlega afhent. Kvennadeild LSH lýsir þakklæti til styrktarsjóðs Sonju fyrir stuðninginn.

Í frétt frá kvenna- og barnasviði Landspítalans segir að sjóðurinn hafi ákveðið að styrkja kvennadeildina í desember 2006. Síðan hafi styrkurinn verið greiddur í áföngum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert