Bíll niður um ís á Rauðavatni

Ísinn brotnaði undan bílnum.
Ísinn brotnaði undan bílnum. mbl.is/Kristinn

Engum varð meint af þegar bíll fór niður um vök á Rauðavatni í kvöld. Slökkvilið og björgunarlið komu á staðinn. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið út á ísinn á vatninu og ísinn gefið sig undan þunga bílsins.

Að sögn lögreglu höfuðborgarsvæðisins var ökumaðurinn einn í bílnum. Hann var búinn að koma sér á þurrt og beið í öðrum bíl þegar lögregla og björgunarlið komu á staðinn. 

Ísinn brotnaði undan bílnum og fór hann hálfur ofan í vatnið. Einhverjar skemmdir urðu á bílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert