Mótmælt á Austurvelli

Um 300 manns söfnuðust saman á Austurvelli í dag.
Um 300 manns söfnuðust saman á Austurvelli í dag.

Enn var mótmælt á Austurvelli í dag og hafði líkt og laugardaga undanfarin misseri. Komu um þrjú hundruð manns saman á Austurvelli og mótmæltu að þessu sinni.

Á Austurvelli var þá við þetta tilefni efnt til annars fundar Alþingis götunnar, sem stofnað var á laugardaginn fyrir viku. Þungamiðja krafna Alþingis götunnar er að heimilin fái leiðréttingu sinna mála og almenningur fái meiri réttarbætur sér til stuðnings, komi til uppgjörs lána í einu eða öðru formi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert