Segir borgarstjóra í nauðvörn
Dagur B. Eggertsson gagnrýnir tilkynningu frá borgarstjóra um uppbyggingu golfvallar við Korpúlfsstaði. mbl.is/Brynjar Gauti
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að íþróttafélögin hafi fengið þau skýru skilaboð að framkvæmdir samkvæmt gömlum samningum yrðu að bíða fram yfir kreppu.
Skrifstofa borgarstjóra sendi fyrr í dag frá sér tilkynningu um að verja ætti 230 milljónir til stækkunar á golfvelli við Korpúlfsstaði. Dagur segir að í tilkynningunni sé reynt að slá ryki í augu borgarbúa. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri láti þar að því liggja að „verið sé að efna“ samning frá 2006.
„Greinilegt er að borgarstjóri er í nauðvörn vegna málsins,“ segir í tilkynningu frá Degi.
„Í fyrsta lagi: Samningnum við GR (Golfklúbb Reykjavíkur) frá 2006 var breytt árið 2007. Síðarnefndi samningurinn gerir ekki ráð fyrir neinum fjárútlátum Reykjavíkurborgar. GR fékk hins vegar leyfi til að nýta land til að fjármagna völl.
Í öðru lagi: Fyrst borgarstjóri nefnir samninga. Kjarninn í gagnrýni Samfylkingarinnar er einmitt sá að öll íþróttafélög hafa fengið þau skýru skilaboð að framkvæmdir samkvæmt gömlum samningum þurfi að bíða fram yfir kreppu.
Í þriðja lagi: Meira eða minna allir þjónustu- og rekstrarsamningar hafa þurft að taka miklum skerðingum. Sama á við um skóla og leikskóla. Það sama á við um laun og kjör kennara, verkafólks, stjórnenda, félagsráðgjafa o.s.frv. o.s.frv. Hvarvetna hefur verið niðurskurður, skerðingar og launalækkanir. Flestu hefur verið tekið af jafnaðargeði - enda kreppa og minna til skiptana. Forvarnarsjóður hefur verið lækkaður, afleysingarkennslu hætt, biðlistar í leikskólum lengdir, frístundakort barna fryst og sumarstörfum stór-fækkað, svo aðeins séu tekin örfá dæmi.
En ofan í þessa stöðu - þvert ofan í niðurskurðinn - og þá ótal samninga sem eru í frestun - segist Hanna Birna eiga 230 milljónir í golfvöll. Það er einmitt þetta ósamræmi sem Samfylkingin gagnrýnir. Pólitík snýst um forgangsröðun.“
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Lagt til að bæta golfvöll fyrir 230 milljónir
- Laugardagur, 1. maí 2010, Innlent Vilja Hönnu Birnu áfram
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Innlent Samstarf við Sjálfstæðisflokk langsótt
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Dagur gagnrýnir Árna Pál
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Ákveðin krafa um endurnýjun
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu




































