Fara þarf yfir lög um erlenda fjárfestingu
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir mál er varðar kaup Magma Energy í HS-Orku hafa leitt í ljós að lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri séu ekki nægilega vel úr garði gerð. Leggja þurfi í vinnu hjá ráðuneytinu í að fara yfir ýmsa þætti laganna.
Niðurstaða nefndarinnar endanleg
Eins og sagt var frá í gær hefur meirihluta ráðherraskipaðrar nefndar komist að því að áðurnefnd lög koma ekki í veg fyrir að Magma Energy kaupi hlut í HS-Orku. Magma er kanadískt félag en kaupir hlutinn í gegnum skúffufyrirtæki í Svíþjóð, en lögin eru rýmri þegar kemur að fjárfestingum fyrirtækja frá Evrópska efnahagssvæðinu.
Ráðherra fór í dag yfir málið með embættismönnum. Hann segir það hlutverk nefndarinnar að taka ákvörðun í málinu og fela svo ráðherra að framkvæma hana. „Þannig að ég hef ekki svigrúm, að því er mér sýnist, til að gera neitt annað en að fara eftir niðurstöðu meirihluta nefndarinnar.“
Lögin ekki vel úr garði gerð
Málið sýnir hins vegar að lögin séu ekki nægilega vel úr garði gerð, segir Gylfi. „Það er mjög óheppilegt hversu mikil óvissa er um hvernig á að túlka lögin, eins og strax varð ljóst þegar þetta mál kom upp.“ Fram hefur komið að lögfræðiálit á gjörningi Magma hafa verið misvísandi.
Einnig segir Gylfi óheppilegt að pólitískri nefnd sé falið að túlka lög. „Pólitískar nefndir eiga oft rétt á sér en þær eiga þá að taka ákvarðanir sem í eðli sínu eru pólitískar, en ekki að skera úr um réttarágreining.“
Spurning hvort hömlur séu heppilegar
Loks má velta fyrir sér inntaki laganna, bendir Gylfi á; þ.e. hvort eðlilegt sé að hömlur séu settar á erlenda fjárfestingu með þessum hætti. Spurður hvort hann hafi skoðun á því hvort slíkar hömlur séu heppilegar, segir Gylfi: „Ég tel að minnsta kosti tvímælalaust þarft að leggja í vinnu til að fara yfir það, en ætla ekki að gefa mér fyrirfram hver sé líkleg niðurstaða úr þeirri vinnu.“
Innlent »
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. júlí 2010, Innlent Má eiga 98,5% hlut í HS Orku
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Innlent Kanadamenn á hinu gráa EES-svæði
- Sunnudagur, 11. júlí 2010, Innlent Leiðbeindu ekki eigendum um stofnun félags
- Föstudagur, 15. október 2010, Innlent Ekki tilefni til frekari aðgerða
- Mánudagur, 22. mars 2010, Innlent Magma fær að kaupa HS-Orku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































