57 sagt upp í hópuppsögn

mbl.is

Alls var 57 starfsmönnum sagt upp í hópuppsögnum þriggja fyrirtækja nú um mánaðamótin. Fyrirtækin þrjú eru á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun er um að ræða einn verktaka í byggingariðnaði, fjármálafyrirtæki og fyrirtæki í verslunargeiranum. Fjöldi þeirra sem misst hafa vinnuna í hópuppsögnum hefur haldist svipaður milli mánaða síðasta árið nema í nóvember og desember þegar rúmlega hundrað manns var sagt upp í hvorum mánuði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert