Um 700 yfirgefa heimili sín
Um 700 manns þurfa að yfirgefa heimili sín í nágrenni Eyjafjallajökuls vegna goss sem talið er að sé hafið í jöklinum. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, segir að rýming gangi vel, en rýming nær eingöngu til sveitanna.
Ákveðið var að rýma öll skilgreind hættusvæði nú þegar. Íbúar í Fljótshlíð, á Merkurbæjum, á Markarfljótsaurum og í Landeyjum eru beðnir að fara í fjöldahjálparstöð og skrá sig þar. Fjöldahjálparstöð hefur verið opnuð í Grunnskólanum á Hvolsvelli til viðbótar við fjöldahjálparstöðvar á Heimalandi, Varmahlíð og Drangshlíð. Þjóðvegur 1 er núna lokaður við Skeiðavegamót og alveg austur að Skógum.
„Ef gosið er syðst í jöklinum gæti liðið 20-30 mínútur frá því gos hefst þangað til merki um flóð sjást í byggð. Þetta gæti hins vegar verið annars staðar í jöklinum eða utan jökla,“ segir Víðir.
Víðir segir að jarðfræðingar telji að gos sé hafið, en ekki hafi sést neinn mökkur ennþá. „Allt bendir til að þetta sé lítill atburður enn sem komi er,“ segir Víðir.
Ekki er gott skyggni til jökulsins, en stefnt er því að fljúga yfir jökulinn strax og birtir.
Skýr merki um óróa undir Eyjafjallajökli komu fram á jarðskjálftamælum Veðurstofu Íslands um miðnættið. Skjálftarnir eru mjög margir og þeir sterkustu um 2,5 að stærð.
Þekkir þú til? Fannstu skjálfta? Býrðu á svæðinu? Þá viljum við heyra í þér! netfrett@mbl.is
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Útlitið betra
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Óvissustig vegna Grímsvatna
- Fimmtudagur, 27. maí 2010, Innlent Lýsa ekki yfir goslokum að sinni
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Stefnir í mikið tjón
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent 400 manns hafa skráð sig
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































