Nýtt flóð á leiðinni
Rétt í þessu var að mælast 50 cm. hækkun vatnsyfirborðs við gömlu Markarfljótsbrúna.
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, upplýsti í eftirlitsflugi á fimmta tímanum að bólstrar frá gosstöðvunum næðu upp í 30 þúsund fet og að vindur á svæðinu væri kröftugur, í 19 þúsund feta hæð mældist hann um 85 – 90 hnútar, sem jafngildir 167 km/klst.
Samkvæmt upplýsingum Samhæfingarstöðvar hefur verið þykkt ský yfir Klaustri í dag en lítið öskufall. Öskufallið virðist fara hátt og leggur langt yfir. Ekki er vitað um öskufall á öðrum stöðum, þ.e.a.s. við byggðarkjarna, en vindur snýst í norðanátt í kvöld og má þá búast við öskufalli sunnan gosstöðvarinnar.
Lokað við Hvolsvöll
Kjartan Þorkelsson sýslumaður segir að ákveðið hafi verið að loka þjóðvegi 1 við Hvolsvöll. Lokunin gildi fyrir morgundaginn, en þá er búist við miklu öskufalli undir Eyjafjöllum. Kjartan segir að gott útsýni sé til gosstöðvanna frá Hvolsvelli, en ferðamenn sem vilji skoða gosið fái ekki leyfi til að fara lengra.
Björgunarsveitir hafa sinnt lokunum á fimm stöðum í dag auk mönnunar í stjórnstöð aðgerða og vettvangsstjórnar á Hvolsvelli. Þær lokanir sem sveitir hafa séð um eru við Fljótsdal, gömlu Markarfljótsbrú við þjóðveg 1, við Vík og við Kirkjubæjarklaustur. Vegurinn milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs var opnaður aftur uppúr klukkan fjögur í dag.
Áætlað er að viðgerð á þjóðveginum við Markarfljót ljúki í kvöld eða í fyrramálið.
Leiðbeiningar vegna heilsufarslegra afleiðinga eldgossins hafa verið settar á vef heilbrigðisráðuneytisins og allra heilsugæslustöðva, auk þess sem sóttvarnalæknar allra sóttvarnaumdæma hafa dreift þeim til sinna heilbrigðisstarfsmanna.
Fundir voru haldnir með sendiherrum og ráðuneytisstjórum í Samhæfingarstöðinni í dag og þeim gerð grein fyrir stöðu mála.
Þjóðvegur 1 er lokaður við Hvolsvöll að vestan og við Skóga að austan, einnig er lokað inn í Fljótshlíð.
Búið er að opna upplýsingamiðstöð á Hvolsvelli, í húsnæði vettvangsstjórnar.
Bloggað um fréttina
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Lónið fullt af leir og vegurinn ónýtur -
Pálmi Freyr Óskarsson Loksins næst mynd af gosmekkinum frá Stórhöfða séð
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Ítrekar bann við umferð á Mýrdalsjökli
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Búast við nýju flóði
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Önnur lögmál á landsbyggðinni
- Sunnudagur, 18. apríl 2010, Innlent Fólk flýr öskufallið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































