Óli Björn Kárason og Sigurður Kári Kristjánsson tóku í dag sæti á Alþingi. Þeir eru varamenn Illuga Gunnarssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, sem bæði hafa óskað eftir leyfi frá þingstörfum í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.