Framboð framkvæmdastjóra veldur titringi

Þóra Kristín Ásgeirssdóttir og Hjálmar Jónsson.
Þóra Kristín Ásgeirssdóttir og Hjálmar Jónsson.

Félagsmenn í Blaðamannafélagi Íslands kjósa sér formann næstkomandi fimmtudag. Í framboði eru Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sitjandi formaður, og Hjálmar Jónsson, fyrrverandi formaður og núverandi framkvæmdastjóri. Framboð Hjálmars kom mjög á óvart og hefur heldur betur hrist upp í umræðunni meðal félagsmanna.

Hjálmar segist ekki hafa íhugað framboðið lengi en um skeið hafi þó verið ágreiningur milli hans og Þóru Kristínar um stefnumörkun og starfsaðferðir BÍ. Ofan á ágreininginn hafi Hjálmar svo orðið var við óánægju félagsmanna og fengið áskoranir um að gefa kost á sér. „Ég hef starfað lengi innan félagsins og taldi raunar að ég væri búinn að gegna mínu hlutverki sem formaður [insk. blms. frá árinu 1998 til 2003]. En í ljósi þeirra áskorana sem ég fékk og þess, að ég tel félagið hafa borið af leið undanfarið taldi ég nauðsynlegt að gefa kost á mér. Ef ekki til annars en að almennir félagar geti kveðið upp sinn lýðræðislega úrskurð.“

Engar óánægjuraddir

Þóra Kristín segist ekki hafa orðið vör við óánægju með störf sín fyrir Blaðamannafélagið. Það hafi þó ekki allir verið jafn sáttir við gagnrýni hennar á ritstjóraskipti á Morgunblaðinu né eignarhald á fjölmiðlum almennt. Sumir félagsmenn hafi einnig sett spurningarmerki við, að hún ritstýri Smugunni, sem er umræðuvettvangur fyrir vinstra fólk og m.a. í eigu Vinstri grænna. Það verði hins vegar aldrei allir sammála um allt sem viðkemur félaginu.

Þóra Kristín segir starfið ekki hafa áhrif á störf sín innan BÍ. „En það er ágætt að sú umræða komi upp. Ég vil starfa fyrir alla félagsmenn Blaðamannafélagsins og skorast ekki undan því. Ef ég væri í framboði fyrir stjórnmálaflokk eða virkur þátttakandi í stjórnmálastarfi þá hefði það áhrif á mitt starf innan BÍ en það að hafa skoðanir á þjóðmálum og stýra vinstri sinnuðum umræðuvettvangi hefur það ekki,“ segir hún og bætir við að hún sé ekki flokksbundin í VG.

Hvað viðkemur ágreining milli Hjálmars og hennar segir Þóra hann vera vegna breytinga sem hún vill gera á skipulagi félagsins. „Það er að skerpa skilin milli framkvæmdastjórastarfsins og formennskunnar og að stjórnin sé virkari og upplýsingar til að mynda um fjárhag og útgjöld félagsins séu uppi á borðum.“

Fagpólitík er grunnurinn

Aðspurður segir Hjálmar óánægjuraddir meðal annars vegna þess að fagpólitík og flokkapólitík er blandað saman með núverandi formanni. „Flokkspólitík og fagpólitík fara ekki saman í Blaðamannafélaginu og við höfum ekki verið með slíkt í 30 ár. Fagpólitík á að vera grunnurinn, það er einfalt mál.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert