Ólafur heiðraður á færeyskri menningarhátíð

Gunnvör Balle, sendikvinna Færeyja á Íslandi, Ólafur Halldórsson, handritafræðingur, sem …
Gunnvör Balle, sendikvinna Færeyja á Íslandi, Ólafur Halldórsson, handritafræðingur, sem var heiðraður sérstaklega á hátíðinni og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.

Á færeyskri menningarhátíð á Kjarvalsstöðum í Reykjavík í dag var Ólafur Halldórsson, handritafræðingur, heiðraður sérstaklega fyrir starf í þágu menningartengsla frændþjóðanna tveggja, Færeyinga og Íslendinga.

Ólafur, sem varð níræður þann 18. apríl sl., hefur um áratugaskeið unnið að rannsóknum á handritum, textum og útgáfum á fornsögum. Hann nam íslensk fræði við Háskóla Íslands og dvaldi síðar við fræðistörf á Árnasafni í Kaupmannahöfn um árabil og var einnig sendikennari þar. Árið 1963 varð hann sérfræðingur á Handritastofnun Íslands, sem nú heitir Stofnun Árna Magnússonar.

Ólafur hefur fengist við rannsóknir á rithöndum í handritum og textaútgáfum, m.a. við útgáfur á Færeyinga sögu og kynningu á henni í Færeyjum og á Íslandi. Að lokinni afhendingu hélt Ólafur fyrirlestur um Færeyingasögu í einum af sölum safnins.

Um 500 manns sóttu færeysku menningarhátíðina í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Anna Dóra Gunnarsdóttir: Ern
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert