Hraun komið um 1 km frá gígnum
Nýja hraunið sést á milli stóru hvítu gufumakkanna. Það hefur nú náð 1 km norður fyrir gíginn. Gosmökkurinn er dökkur bak við gufubólstrana. Magnús Tumi Guðmundsson/Jarðvísindastofnun HÍ
Hraun hefur nú runnið um einn kílómeter frá eldgígnum á toppi Eyjafjallajökuls, í átt að Gígjökli, að mati Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors. Hann flaug yfir gosstöðvarnar fyrr í dag. Magnús Tumi sagði að fremur lítill gosmökkur stígi í 10-12 þúsund feta hæð og leggi til vestnorðvesturs.
Magnús Tumi telur að eldgosið sé í meginatriðum enn á svipuðu róli og undanfarna daga. Dálítið öskufall er frá gosmekkinum á jökulinn næst eldstöðinni. Magnús Tumi sagði að smávegis aska hafi borist til norðvesturs á síðustu dögum og eru Tindfjöll, Tindfjallajökull og fjöllin þar í kring grálituð af ösku.
Vísindamennirnir gátu nú skoðað gosstöðina sunnanmegin frá í annað skiptið frá því að gosið hófst. Hún sást fyrst sunnanfrá snemma í síðustu viku. Nú var mjög gott skyggni þeim megin.
„Jökullinn er mjög þunnur þar en það er að myndast sigdæld utan um eitt gatið. Það er hægt og rólega að bráðna þar í kring en það er ekkert vatn að safnast þar upp,“ sagði Magnús Tumi.
Hægt var að mæla hitastig hraunsins með hitamyndavél og reyndist hraunjaðarinn vera um 200°C heitur. Þar er hraunið upp við ísstál og leggur töluvert mikla gufu þar upp.
Bloggað um fréttina
-
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Nú fellur hraun niður með Gígjökli -
Marinó G. Njálsson Gufa frá bráðnun undir jökli -
Njörður Helgason Náttúrukæling á hrauninu.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 22. mars 2010, Innlent Eldgosið heldur að aukast
- Laugardagur, 24. apríl 2010, Innlent Hraun bræðir sér leið
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Gosið færist í aukana
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Innlent Eitt öflugasta hverasvæðið
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Gas fylgir vatninu úr Gígjökli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































