Bannað að spila bingó á hvítasunnudag

Bannað er að spila bingó á hvítasunnudag
Bannað er að spila bingó á hvítasunnudag mbl.is/Árni Sæberg

Dansleikir og aðrar skemmtanir að kvöldi laugardags fyrir hvítasunnu mega standa til kl. 03 aðfaranótt hvítasunnudags. Á hvítasunnudag er eftirtalin starfsemi bönnuð: Dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að. Sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram.

Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á hvítasunnudag. Slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15 umræddan dag, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert