Forsætisráðherrar ræða um efnahagskreppu

Norrænu forsætisráðherrarnir í Danmörku í dag.
Norrænu forsætisráðherrarnir í Danmörku í dag. Reuters

Alþjóðlega fjármálakreppan var til umræðu á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna, sem haldinn var í dag í Marienborg í Danmörku, sérstaklega áhrif hennar á nágrannaríki innan Evrópu og evrusvæðið.  Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sat fundinn.

Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu gerði Jóhanna  á fundinum sérstaka grein fyrr stöðu mála á Íslandi, bæði hvað varðar efnahagslega uppbyggingu og einnig það uppgjör og ákvarðanir sem framundan eru eftir útkomu skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Hafi norrænu forsætisráðherrarnir lýst samkennd með Íslandi í þessum erfiðu aðstæðum og teldu markverðan árangur hafa náðst.

Þá var rætt um stuðningsaðgerðir ESB, nýjan sjóð sambandsins sem ætlað er að skapa stöðugleika á evrusvæðinu og samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þakkaði Jóhanna norrænu ríkjunum sérstaklega fyrir þann stuðning og samstöðu sem þau sýndu Íslandi í tengslum við endurskoðun áætlunar sjóðsins fyrir Ísland í apríl s.l. og lagði áherslu á að tvíhliða málefni eins og Icesave mætti ekki standa í vegi fyrir eðlilegu ferli á alþjóðavettvangi, hvorki hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum né í aðildarumsókn Íslands að ESB.

Á fundinum var rætt um samkeppnishæfni Norðurlandanna á sviði grænnar orku og frekara norrænt samstarf á því sviði, í framhaldi af norrænu hnattvæðingarþingi sem haldið var í gær. Norðurlöndin starfa saman að fjölmörgum verkefnum á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar sem tengjast vistvænni orku og samstarfi um rannsóknir og tækni. 

Þá ræddu forsætisráðherrarnir um stöðu alþjóðlegra viðræðna í loftslagsmálum og áframhaldandi samningaumleitanir um alþjóðlegar skuldbindingar eftir Kaupmannahafnarfundinn 2009.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert