Á ofsahraða yfir Hellisheiði

Umferð á Hellisheiði - fólk á leið í og úr …
Umferð á Hellisheiði - fólk á leið í og úr fríi - Lögreglan fylgist með umferð Morgunblaðið/ÞÖK

Talsvert var um hraðakstur á þjóðvegi eitt yfir Hellisheiði í gærkvöldi. Lögreglan á Selfossi stöðvaði þrjá ökumenn sem voru vel yfir hámarkshraða, sem er 90 við kjöraðstæður. 

Sá sem hraðast ók mældist á 159 kílómetra hraða á klukkustund og því um 70 km yfir hámarkshraða. Hinir tveir voru stöðvaðir á 134 og 135 kílómetra hraða.

Að hraðakstri undanskildum var rólegt hjá lögreglunni á Selfossi í gærkvöldi og í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert