Nefnd skoði forsendur verðtryggingar

Þingmenn fylgjast með umræðum á Alþingi.
Þingmenn fylgjast með umræðum á Alþingi. mbl.is/Ómar

Viðskiptanefnd Alþingis hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að efnahags- og viðskiptaráðherra verði falið að skipa nefnd sem kanni forsendur verðtryggingar á Íslandi, meti kosti og galla þess að dregið verði úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi og hvaða leiðir eru hagfelldastar í því skyni.

Nefndinni á að skoða á heildstæðan hátt áhrif verðtryggingar á lántaka og lánveitendur sem og áhrif hennar á virkni hagstjórnar og efnahagslegan stöðugleika almennt. Nefndin á að leggja fram tillögur til að draga úr umfangi verðtryggingar án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.


    Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra flokka á þingi auk eins fulltrúa efnahags- og viðskiptaráðuneytis og eins fulltrúa fjármálaráðuneytis. Nefndin á að skila ráðherra áliti og tillögum fyrir lok árs 2010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert