Fundi formanna lokið í stjórnarráðinu

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. Jim Smart

Fundi formanna allra þingflokka í stjórnarráðinu er nú lokið, en hann var óvænt boðaður í morgun um svipað leyti og þingfundur hófst á Alþingi. Að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur forseta Alþingis var umræðuefni fundarins viðbrögð við dómi hæstaréttar um gengistryggð lán. 

Fyrsta mál á dagskrá þingfundar í morgun átti að vera munnleg skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra um áhrif dóms Hæstaréttar um gengistryggingu lána en því var frestað þar til síðar í dag vegna fundarhalda formanna flokkanna.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert