Vilja ekki ríkisafskipti vegna dómsins

Árni Helgason er formaður Heimdallar
Árni Helgason er formaður Heimdallar

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að sitja á sér með afskipti af svokölluðum myntkörfulánum og samningum þess efnis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Samningarnir eru áfram í gildi þó eitt ákvæði þeirra hafi verið metið ólögmætt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu.

„Í samningum felst alltaf ákveðin áhætta og í þessu tilfelli verða fyrirtækin að axla ábyrgðina á því að verðtrygging lánanna var ólögmæt, rétt eins og fyrirtækin sjálf fóru fram á að skuldarar virtu samningana og tækju á sig hallann af gengisþróuninni fram að því að dómar Hæstaréttar féllu.

Íhlutun stjórnvalda í samningana með lagasetningu eða öðrum leiðum væri auk þess enn eitt dæmið þar sem hið opinbera kæmi fyrirtækjum til bjargar í kjölfar mistaka sem gerð eru. Brýnt er að hafa í huga að fyrirtækin starfa á eigin ábyrgð en ekki stjórnvalda eða skattgreiðenda."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert