Einhliða aðgerð án alls samráðs
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.
„Þetta er algerlega einhliða og án alls samráðs við fulltrúa neytenda eins og embætti talsmanns neytenda. Þarna er farið algerlega eftir ýtrustu kröfum fjármálafyrirtækjanna þannig að það eru ekki mikil tilmæli til þeirra fólgin í því. Það er aðeins verið að biðja þá að innheimta þær kröfur sem væru þær ýtrustu ef þeir færu í mál til þess að reyna að hnekkja dómum Hæstaréttar,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, í tilefni af þeim tilmælum Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins til fjármálafyrirtækja að taka mið af lægstu óverðtryggðum og verðtryggðum vöxtum Seðlabankans á hverjum tíma við innheimtu á gengistryggðum lánum sem falla undir dóma Hæstaréttar á dögunum.
Samkvæmt vef Seðlabanka Íslands eru vextir á óverðtryggðum útlánum 8,25%, en á verðtryggðum útlánum 4,8%.
Gísli gagnrýnir ennfremur að þetta skuli tilkynnt af hálfu Seðlabankans
og Fjármálaeftirlitsins í dag síðasta dag mánaðarins rétt áður en
greiðslur eigi að fara fram af umræddum lánum. Greinilegt sé að búið sé
að taka þessa ákvörðun fyrir margt löngu enda ljóst að það taki sinn
tíma að stilla öll innheimtukerfi eftir þessum nýju forsendum.
Gísli segist telja að mjög hæpin lagastoð sé fyrir tilmælum Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Þau fari í raun í gegn 60. grein stjórnarskrárinnar að stjórnvöld séu að grípa inn í fordæmisgildi dóma. Þar sé kveðið á um það að dómstólar eigi síðasta orðið en stjórnvöld aðeins til bráðabirgða.
Hann segir að búast megi við að embætti talsmanns neytenda sendi frá sér leiðbeiningar í kvöld eða á morgun til neytenda um það hvernig bregðast skuli við tilmælum Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Þeir gerðu mistök! -
Rafn Gíslason Ég mun ekki greiða þessa vexti. -
Sólveig Adamsdóttir vextirnir!!!!!! -
Gunnar Heiðarsson Brot á stjórnarskrá -
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson Lykilatriðið er "Einhliða"
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 15. júlí 2010, Innlent Afturkalli tilmæli sín
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Segir tilmælin ómarktæk
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Miða við lægstu vexti á hverjum tíma
- Laugardagur, 24. júlí 2010, Innlent Dómurinn fjórfaldar vextina
- Mánudagur, 5. júlí 2010, Innlent Samráðsvettvangur nauðsynlegur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































