Lægðin bindur enda á öskufokið

Svona var umhorfs undir útfjöllum fyrr í dag, öskufok við …
Svona var umhorfs undir útfjöllum fyrr í dag, öskufok við Seljalandsfoss í stífri austanátt mbl.is/GSH

Talsvert öskufok hefur verið í dag vestast í Mýrdalshreppi og undir Eyjafjöllum. Í stífri austanáttinni hefur askan borist alla leiðina yfir Hvolsvöll, að sögn lögreglunnar þar.

Von er á rigningu fljótlega sem mun vonandi binda öskuna og stöðva fokið. 

Veðurstofan spáir djúpri lægð með austanóveðri við suðurströndina á morgun og má þá búast við talsverðri rigningu á svæðinu.

Eins og fram hefur komið hefur verið ákveðið að færa tónlistarveisluna „Iceland Inspires“til Reykjavíkur, í Hljómskálagarðinn, vegna veðurs en hún átti að fara fram við Hamragarða, skammt frá Seljalandsfossi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert